Opnunartími:
Faxafeni 5
Mánudaga til föstudaga 10-18
Laugardaga 11-16


Faxafen 5, Reykjavík
588-8477

 


Skeiði 1, Ísafirði
456-4566

 

Eitt Líf
- njótum þess

Opnunartími

Við erum með opið alla laugardaga frá 11-16. Mánudaga til föstudaga er opið frá 10-18
Betra bak Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

husogbilar

Verslunin Betra Bak hefur frá upphafi einsett sér að vera leiðandi í nýjungum á rúmamarkaði ásamt því að sérhæfa sig í sölu á viðurkenndum heilsudýnum og stillanlegum rúmum. Verslunin hefur fylgt eftir þeirri öru þróun sem hefur átt sér stað í heiminum síðastliðin tíu ár. Dýnurnar og rúmin koma alls staðar að, svo sem Ameríku, Þýskalandi, Hollandi, Danmörku, Ítalíu, Ísrael og víðar.

Betra Bak býður margar gerðir rúma, allt frá hinum þekktu Tempur og Spring Air heilsudýnum, til hátísku ítalskrar hönnunar sem ber alveg gerólíkt yfirbragð. En eins og þróunin hefur orðið síðastliðin tvö ár hafa rúm í evrópskum stíl með stillanlegum botnum og heilsudýnum orðið æ vinsælli.

Betra Bak brást við þessari auknu eftirspurn með því að opna glæsilegan sýningarsal á neðri hæð verslunarinnar með flottum evrópskum rúmum og fataskápum frá T.M. Line í stíl. Nú fæst allt í svefnherbergið í Betra Bak, rúmið, rúmfötin, sængurnar, teppasettið, fataskápurinn, húsgögn, heilsukoddinn o.fl. Tempur þrýstijöfnunarefnið, sem Geimferðastofnun Bandaríkjanna (NASA) þróaði á sínum tíma, var í fyrstu dýnunni sem Betra Bak byrjaði með og hefur sú dýna verið ein mest selda heilsudýna landsins undanfarin ár. Stefna fyrirtækisins er að halda áfram á sinni braut og vera alltaf opið fyrir góðum nýjungum.

 

Þjónusta

Frá upphafi hefur Betra Bak boðið upp á fría heimkeyrslu á höfuðborgarsvæðinu. Allir sem kaupa rúm í Betra Bak hafa 30 daga skila- og skiptirétt á dýnunum.

Betra Bak hefur stóran lager og er varan afhent samdægurs nema vilji viðskiptavinarins sé annar. Vörur frá Treca og Auping eru hins vegar pantaðar inn því sú vara er sérframleidd eftir þörfum hvers viðskiptavinar.

 

Upplýsingar um Betra bak:
Radix ehf.
Faxafeni 5
108 Reykjavík
Kt. 510194-2929
Vsk. nr. 40963

Sími 588 8477
Fax 588 8475

Betra bak selur vörur sínar einnig í:

Betra Bak
Skeiði 1
400 Ísafjörður
Sími 456 4566